Rót ógildingarinnar

Kosningin var ógild vegna þess að framkvæmdin var ekki í samræmi við lög.

Þegar sjálfur innanríkisráðherra lýsir furðu á því að hæstiréttur skuli hafa dæmt eftir lögum frekar en að sveigja með tilliti til "almannahagsmuna" þá er ég ekki hissa að framkvæmdin hafi verið eins og hún var.

Vandinn var einmitt sá að kjörstjórnin taldi sig ekki þurfa að fara nákvæmlega eftir lögum vegna þess að henni hentaði annað og því fór sem fór. Ögmundur er á sömu skoðun, ekki á að fara eftir lögum ef honum hentar annað, umskrifað sem almannahagsmunir.

Mikið vildi ég að ég þyrfti ekki heldur að fara eftir lögum ef mér hentaði annað. Verst að ég get illa beitt fyrir mig að mínar þarfir séu almannahagsmunir en hver metur svo sem hvað eru almannahagsmunir og hvað ekki.


mbl.is Ákvörðun Hæstaréttar kom á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Það er komið gott við verðum að rísa upp gegn þessu bulli!

Sigurður Haraldsson, 27.1.2011 kl. 13:22

2 Smámynd: Björn Jónsson

Sammála þér í þessu. Finnst þér ekki undarlegt hversu sumt fólk getur verið með steinrunnar Stalínista og Hitlers skoðanir, sveigja bara lög og reglur eftir sínum sértrúar hentugleikum. Svo eru náttúrulega til aðilar sem vita ekki í hvorn fótinn á að stíga, líkt og Sigurður Haraldsson , hér á undan.

Björn Jónsson, 27.1.2011 kl. 17:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Bloggidí blogg

Höfundur

Rekstrarhagfræðingur og vinn sjálfstætt sem ráðgjafi í rafrænum viðskiptum. Hægrisinnaður hvað varðar efnahagskerfið en tel vissa þjónustu betur eiga heima hjá ríkinu s.s. heilbrigðisþjónustu og menntamál.

Maí 2012
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nota bene

Prufa

Bara til að sjá hvernig þetta kemur út.

Íní míní mæní mó.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 0
  • Frá upphafi: 8708

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 0
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband